AIC – ÍSLAND / ICELAND
|
Isavia ANS ehf., Reykjavíkurflugvelli, 102 Reykjavík / Isavia ANS, Reykjavik Airport, IS-102 Reykjavik, Iceland Sími / Telephone: + 354 424 4000 ais@isavia.is http://www.isavia.is/
|
| |
|
Effective from 13 OCT 2017
Published on 13 OCT 2017
|
|
| |
Skráning bilana / Recording of defects and malfunctions
|
|
Efnisleg ábyrgð: Samgöngustofa
|
|
1 Skráning bilana í leiðar- og tækniflugbækur í einkaflugi |
Flugöryggissvið vill hvetja til þess að notaðar séu leiðar og tækniflugbækur (Aircraft Journey and Technical Log) í einkaflugi til þess að tryggja að bilanir séu skráðar og að upplýsingar um ástand loftfars berist á öruggan hátt milli flugmanna. |
Þann 17. júní 2003 átti sér stað flugatvik á Reykjavíkurflugvelli þegar flugvélin TF-FKR sveigði út af flugbrautinni í lendingabruni. Fram kemur í skýrslu Rannsóknarnefndar flugslysa að stuttu fyrir atvikið munu flugmenn, sem flogið höfðu flugvélinni, bent umsjónarmanni hennar og flugvéltækni á nokkur atriði sem gáfu til kynna að óöruggt væri að starfrækja flugvélina. Þar munu meðal annars hafa komið fram upplýsingar um að beita þyrfti hliðarstýri/nefhjólstýri óeðlilega mikið til vinstri í akstri til þess að halda flugvélinni í beinni stefnu, ennfremur mun hafa komið fram að flugvélin hafi leitað til hægri í lendingum. Þessar athugasemdir höfðu ekki verið skráðar í leiðar og tækniflugbók flugvélarinnar af flugmönnum hennar. |
Flugöryggisvið hvetur því til þess að verklag við skráningu bilana í leiðar og tækniflugbók sé fylgt eftir af flugmönnum í einkaflugi. Ef flugmaðurinn sem flaug þennan dag hefði á aðgengilegan hátt getað kynnt sér ástand flugvélarinnar með upplýsingum úr leiðar og tækniflugbók flugvélarinnar kynni hann að hafa metið það svo að flugvélin væri ekki lofthæf fyrir umrætt flug. |
Upplýsingabréf fellt út gildi: / AIC hereby cancelled:
B 010 / 2004
|
Efni eftirfarandi NOTAM skeyta birt í þessu upplýsingabréfi: / NOTAM incorporated in this AIC:
Ekkert / NIL
|
|